16janúar

Seint....en þó loksins!

Ég er að pæla að hætta með þessa bloggsíðu. Akkurat eins og er, er ég engan vegin að nenna þessu eins og þið sjáið. Ég er búin að reyna núna trekk í trekk að henda inn myndunum...  af jólunum & áramótunum en alltaf koma þær KOLVITLAUSAR ÚT! Svo er þetta bloggar dæmi bara ekkert að gera sig...

Kannski ég fari bara að verða ólétt og búi til barnaland... ??  hehe segi svona en já ég ætla svona að skoða mig um og sjá til hvort ég búi til einhverja nýja sem getur tekið við myndum ...  kannski þetta 123.is sé ágætt. Hvernig er þetta að virka Herborg ???

En annars bara gleðilegt nýtt ár öllsömul og takk fyrir það gamla. Var mjög skemmtilegt ár. Janúar er bara búinn að byrja vel hjá okkur hjónum, erum reyndar búin að vera frekar löt .... erum buin að horfa á seriu 1&2 og ný byrjuð á þeirri 3af Greys anatomy, geggjaðir þættir. Hissa að ég hafi ekki uppgötvað þá fyrr. Svo erum við bara að vinna eins og mofó alltaf!

Annars.. ætlaði bara láta vita af mér, kannski mitt síðasta blogg. Sé til!

-RakelÓsk
16. janúar 2008 klukkan 19:53
Rakel Ósk Viðarsdóttir
4 athugasemdir
27desember

Gleðileg Jól :)


Gleðileg Jól!!!

Elsku vinir..ættingjar..vandamenn og kæri þú sem ert að lesa :)

Okkar bestu óskir um
gleðileg jól og gott farsælt komandi ár!
Þakka allar frábærar stundir á komandi ári..
Með mörgum eru þær búnar að vera alltof fáar sem þarf að bæta !

Ég hef nánast verið að bíða eftir að þetta jólafrí mitt skyldu skella á alveg frá síðustu jólum, En alltaf eru þau jafn fljót að líða. Þrátt fyrir að þetta hafi gengið hratt yfir átti ég yndislega skemmtileg jól með kærastanum mínum & fjölskyldunni.

Ég og Maggi vorum komin í jólafrí Laugardaginn 22 des kl 16:00 og lauk fríinu í dag með 6 kl.tíma akstri suður sökum veðurs. Svo band brjálað að bílinn fór oft á köflum ekki hraðar en 30 km.

Jólin er alltaf yndislegur tími og var hann það svo sannarlega núna, slöppuðum nóg af og átum á okkur gat... ég þá aðalega nammi. Því jú ekki borða ég þetta sígilda hangikjöt sem er í jólaboðinu á jóladag, en laufarbrauðið stóð fyrir sínu og hamborgahryggurinn á aðfangadag, vorum með tvær tegundir og KEA var mun betri en ALI !

Geir litli var svo meira og minna veikur allan tímann, hann fékk vott að lugnabólgu greyjið. en er loksins allur að koma til núna ;*

Við hjónin fengum voða flottar og nytsamlegar gjafir í búið í jólagjöf.

T.d...

- Heimasíma (saman)
- Handryksugu (saman)
- Pottasett ( saman )
- Inniskó
- Bad Head shampoo, hárnæringu og sprey
- ilmvatn...amor amor
- ilmvatn, body location, og gloss.... just me/paris hilton
- disesel gallabuxur
- digital myndavél
- 66° norður vettlinga

Við Maggi tókum yfir 200 myndir um jólin, svo ég er að reyna að búa til nýtt albúm hér vinstra megin uppi undir "myndir" endilega skoðið þær.

Vinnan tekur svo bara við á morgun svo förum við austur á laugardaginn og verðum þar yfir áramótin :)

En hérna þar sem ég er að blogga þetta í annaðsinn í kvöld þá er ég bara að pæla að slíta þessu í bili.

Endilega kvitta svo og látið mig vita hvernig ykkur fannst myndirnar koma út :D

- Rakel Ósk

27. desember 2007 klukkan 20:48
Rakel Ósk Viðarsdóttir
2 athugasemdir
18desember

Ákvað að henda á ykkur smá fréttum svona áður en jólin skella á :) ég er steinhissa á að ég hafi orku í að blogga núna .. fór á fætur kl. 06:15 í morgun og kom heim 20:45 langir vinnudagar en ekki verða þeir allir svona langir fram að jólum.  Gærdagurinn var reyndar svona langur líka og ég man varla eftir að hafa komið heim, ég borðaði kvöldmat alltof seint...rétt fyrir 9 eins og í kvöld og beint í sturtu svo bara sofnuð á NO TIME.

Samt er lúmskt gaman að vinna í bónus á svona dögum ...  nóg að gera, smá stress í gangi, lítill sem enginn matartími...t.d í dag...13 tima vinnudagur 25 mínutu matartími. En samt geggjað alveg. þið þarna úti haldið eflaust að ég sé biluð að finnast þetta vera gaman en það er eitthvað sem heldur manni í þessari klikkun. T.d er TÍMINN alltof fljotur að liða sem er mjög góður kostur.

Mamma og Pabbi komumst loksins suður snemma á laugardagsmorgun eftir dágóða töf sem var á föstudag ! við eyddum laugardeginum i verslunum, svo kvöldinu með Söru okkar. Ég bauð mig fram í vinnu á sunnudeginum svo ég var að vinna þrátt fyrir að m&p væru í bænum. fórum út að borða með þeim um kvöldið áður en þau flugu aftur norður.

Get ekki beðið eftir að fara norður næsta laugardag, Geir Örn litli er byrjaður aðeins að labba :D:D Svo verður æðislegt að sjá patrik minn og já bara alla.

Litli frændi minn var svo skírður um helgina því fallega nafni Fenrir Ingi ;*;*

Annars þá er ég við það að sofna hérna við tölvuna svo ég held ég fari að leggja mig, þarf að vakna kl. 06 a morgun *-)


.... maggii minn, lovjú mestast ;*
18. desember 2007 klukkan 22:32
Rakel Ósk Viðarsdóttir
3 athugasemdir
10desember

jólin :D

2 vikur í jólin og ekki nema 12 dagar í að við maggi skellum okkur til Akureyrar :) verðum á Akureyri frá 22 til 27 desember! Svo verðum við fyrir austan hjá tengdó um áramótin, það verður gaman að prufa eitthvað nýtt, rólegt og þægilegt.

Ég átti frí í dag í vinnunni því ég var búin að vinna síðustu 7 daga. Ég ætla svo að reyna að vinna sem mest fram að fríi.

Við eigum ennþá 3 jólagjafir eftir, Örnu systir og Súsönnu og Berglindi systur Magga.
Ég kíkkti i smáralind áðan ég gáði hvort ég fyndi eitthvað en keytpi ekkert nema skó handa mér ;) ætli ég klári þetta ekki bara næstuhelgi.
Mamma og Pabbi koma svo eflaust suður næstuhelgi, verður fínt ef mamma getur hjálpað mér með gjöfina handa Örnu Lind.

Jæja glæstar vonir og nágrannar eru að fara að byrja svo þetta verður bara stutt í bili. Svo ætlum við að grilla á eftir svona einu sinni fyrir jól. :)

Veit að þetta er ósköp stutt og ómerkilegt blogg, en vildi bara láta vita af mér.

Maggi beibý. ...lovjú ;*
10. desember 2007 klukkan 17:22
Rakel Ósk Viðarsdóttir
Engin athugasemd
29nóvember

Er það bara ég eða eruð þið líka að detta í jólaskapið ? :) fyndið ég var ekki svona rosalega spennt yfir jólunum sem krakki en síðustu 2 ár þá er ég bara að deyja úr spenningi allan desember mánuð. Kannski ástæðan sé bara að maður er að fara heim til fjölskyldunnar að borða góðan mat og slappa af í 5 daga.

Ég er allavega hrikalega ánægð að það sé að líða að desember. skemmtilegur mánuður, skemmtilegur tími framundan í vinnunni, mikil vinna og nóg að gera. Mánaðarmóta helgin byrjar allavega rosa vel hjá mér, er búin kl hálf 4 á morgun og ætla beint í plokkun og litun svo eru mamma og pabbi að koma á morgun og verður eitthvað farið í búðir um helgina með þeim, ég og maggi ástin mín ætlum jafnvel að byrja á jólagjöfunum. er nefnilega buin að ákveða nokkrar.

Átti alltaf eftir að segja frá því að Sigrún systir og Geir Örn kíkktu suður fyrir 2 vikum og var það æðislegt. Geir er bara magnaður lítill pungur!Svalur höfðum það rosa gott með þeim.

Var voða misheppnuð á þriðjudaginn, vorum í brettunum uppí vinnu eldsnemma, allir að taka á því og svona gaman, og ég fór aðeins framúr mér og skar í puttann.. og ég beint uppá slysó sem er í hafnarfirði og núna 2 dögum seinna er ég með umbúðir og svona vesen. búið að vera mjög erfitt að vinna í dag og gær. maður verður einhvernvegin svo fattlaður bara á að missa einn putta frá í smá tíma.

En annars var ég búin hálf 5 í dag og er bara heima núna að hafa það gott með Magga mínum ;* er ad pæla að segja þetta gott í bili og taka einn fifa við magga minn..

-Rakel

29. nóvember 2007 klukkan 19:35
Rakel Ósk Viðarsdóttir
2 athugasemdir
13nóvember

Jæja 13 dagar frá síðustu færslu, frekar slappt! Ligg hérna uppí rúmi, ný komin úr sjóðandi heitu freyðibaði gerist ekki betra eftir langan vinnudag:D Ekki verður mikið meira gert í kvöld þar sem ég er alveg úrvinda.

Svona ef ég á að fara til baka um þessa 13 daga þá skelltum við Maggi okkur ásamt Vidda&Lillý kærustu hans til akureyrar 2 nóvember yfir helgina og var það æðislegt. ég var reyndar slöpp allahelgina, með svona rosalega í maganum. Ég hringdi mig inn veika á mánudeginum eftir því þá hafði heiftarlegt kvef bæst við þetta og var ég að drepast. ég harkaði þetta af mér og mæti í vinnu daginn eftir, þriðjudag. Eftir hádegi á miðvikudegi er ég svona gjörsamlega að drepast, næ varla andanum. Fer til læknis (heimilislækninn)... taktu parkodín og þetta lagast. Mér leið strax betur svona inní mér vitandi að þetta var ekkert alvarlegt. En ekki var það svo gott... ég kom heim og gat hvorki hreift legg né lið ef orða það má þannig, ég nánast grét úr sársauka, svo erfitt að anda. fór aftur á læknavaktina (aðra) og komst að því að ég var með magasár/magabólgur einnig. þannig að ég var veik heima næstu 2 daga eftir það.... leiðinlegt!
...ákvað að henda mér í vinnuna á laugardaginn síðasta, harka þessi veikindi af mér. Var svo í fríi á sunnudaginn og naut þess í botn með Magga beibý, grilluðum um kvöldið og leigðum mynd og svona.

Arna Lind systir mín & Jón kærastinn hennar komu líka suður um helgina í stutt stopp.. hittum þau smá, fórum saman út að borða á American style á laugardagskvöldið.


Næstu helgi eru svo Sigrún og Geir litli að koma suður og gista hjá okkur magga frá föstudegi til sunnudags, verður æði :D

Er þetta bara ég eða eru allir að eignast barn ?? Saklaus ég ligg alveg á barnaland að skoða litlu fallegu börnin í kringum mig.. Aldís Marý frænka mín er geggjað sæt og get ég skoðað myndir af henni endalaust. Svo er litlu hennar Fanndísar geggjaður!

En jæja ég er ad pæla að fara að taka einn fifa leik við magga... .vinnahannvonandi :D

kvittið svo endilega eins go síðast!!

kv rakel ...

maggi minn mundu að ég elska þig, bara þig<3

13. nóvember 2007 klukkan 21:18
Rakel Ósk Viðarsdóttir
3 athugasemdir
01nóvember

Loksins nenni ég að blogga, ég er alltof löt í þessu =/ málið er að ég hef bara ósköp fátt að segja þessa dagana. Gengur bara rosalega vel hjá okkur magga beibý :)

Erum búin að hafa það rosalega gott bara. Fyrir tveimur vikum skelltum við okkur austur í sveitina hjá magga og vá hvað var slappað af. Svo var vinnuhelgi síðustu helgi og þrátt fyrir það var helgin frábær. Maggi var svo yndislegur þegar ég kom heim dauðþreytt á laugardagskvöldinu var maggi minn búinn að taka íbúðina í gegn frá toppi til táar ef maður orðar það þannig. Sunnudagurinn var voða nice, vaknaði um hádegi þá var kallinn minn búinn að fara í bakarí... hvað er betra en að vakna við svoleiðis ??

Erum búin að vera að vinna bara alla vikuna, ég var reyndar búin kl. 3 í dag vegna þess að ég var að fara í klippingu, og jú hvað haldiði ég lét verða af því.... ég er DÖKKHÆRÐ! og kom það bara rosa fínt út og varð ekki eitthvað ljósdökkt eins og ég bjóst við!

Við hjónin, Viddi bróðir og Lillý kærasta hans erum að fara heim til Akureyrar á morgun. Verður rosalega gott.... hitta alla og hafa það gott.

Geir Örn litli hennar Sigrúnar verður 1 ÁRS næstu helgi... ÓTRÚLEGA ER ÞETTA FLJÓTT AÐ LÍÐA!

En já ég ætla nú ekkert að hafa þetta mikið lengra í bili, bara endilega kvittið fyrir komuna.

kv rakel ósk
01. nóvember 2007 klukkan 19:49
Rakel Ósk Viðarsdóttir
3 athugasemdir
20október

já SÆÆÆÆLLLL!

Talandi um að það sé þreyta í manni , ég sofnaði 11 í gærkveldi eftir 13 tíma vinnudag og ég vaknaði 13:30 í dag *-) svona lengi hef ég ekki sofið lengi lengi ! Við Maggi skelltum okkur austur eftir vinnu í gærkveldi, fínt að koma hingað og slaka á! Ég hef svo sannarlega slakað vel á í dag, ekki búin að gera handtak!

Gerist svosem lítið hjá okkur hjónum þessa dagana, erum bæði að vinna eins og mofó og ég að læra inná milli. Ætlum svo að skella okkur heim til mín...akureyrar eftir tvær vikur! verður sweet. hlakka geggjað til að sjá Geir Örn, stittist óðum í að hann fari að labba:) Svo verður gaman að kikja á litla hennar Fanndísar, ekki hefur maður séð hann ennþá.

Rannveig frænka og Vilberg voru að skíra litlu dúlluna sína áðan. Aldís Marí..voða fallegt nafn:)

Talandi um næturvaktina ... ef hun er ekki brilliant þá veit ég ekki hvað !

Jóladótið er byrjar að sjást hér í búðum reykjavíkur strax núna í október... er þetta ekki orðið aðeins of snemmt ??

við maggi elskan vorum að búa okkur til myspace... /rakelogmaggi :) vonandi nennum við eitthvað að sinna henni ;) látum allavega á það reyna.

eins og þið sjáið hef ég ósköp lítið að segja... ætla að henda mér í bað og svo er það bara notalegt inni í kvöld þar sem er rigning og ógeð úti!

kv rakel
20. október 2007 klukkan 17:31
Rakel Ósk Viðarsdóttir
Engin athugasemd
10október

Mér finnst eins og það séu ár og aldri frá því ég lét í mér heyra síðast ! tíminn líður alveg ótrúlega skemmtilega of hratt Saklaus 
Ekki hefur svosem margt drifið á daga mína á þessum 10 dögum frá síðustu færslu.  Ég og Maggi skelltum okkur í kózý bústað síðustu helgi og Viddi og Lillý kikktu yfir eina nótt. rosa gaman.
Sunnudaginn 7 október eignaðist ég lítill sætann frænda :) Fanndís frænka var að eiga, til hamingju aftur ;*

Mamma og Pabbi renndu í gegnum bæinn í gær, gott að sjá þau þótt það hafi verið stutt stopp, þau nefnilega voru að fara til keflavíkur, skelltu sér til tenerife í dag og verða í viku.

við hjónin skelltum okkur til keflavíkur áðan í mat hjá Heiðu frænku Magga, við grilluðum og svo bara rólegt spjall áður en lagt var aftur af stað í bæinn.

Við erum búin að spila Fifa08 dáltið eftir að við keyptum hann enda annað ekki hægt, snilldar leikurSvalur 

ég er búin að skila einni ritgerð í fjarnáminu úr snorra eddu ... fékk 8 :) næsta verkefni er svo fyrir mánudaginn, um nafnið mitt! Ég er svo að lesa "röddina, eftir arnald indriða" einnig í fjarnáminu, geggjuð bók !!!

ég er hætt á sunnudögum að vinna sem er svosem fínt. Þannig að núna þegar ég á vinnuhelgi er það bara annarhver laugardagur....geggjað! Ég á enmitt vinnuhelgi núna um helgina þannig að þetta verður bara voða róleg helgi hjá okkur magga mínum.

jæja ætla að skella mér í einn FIFA með kallinum mínum ;*

kvitta svo....

maggi minn... .lovjú ;*

10. október 2007 klukkan 22:23
Rakel Ósk Viðarsdóttir
3 athugasemdir
30september

Sunnudagskvöld og mig gæti ekki liðið betur, vinnuhelgi að baki og frídagur framundan :) búin að vera að vinna núna alveg streit frá því á mánudaginn... mikil vinna / langir dagar mætti t.d kl. 05:45 á föstudagsmorguninn og fór heim 20:30 það gefur smá summu skal ég segja ykkur og eins var dagurinn í dag gærdagurinn.

1 okt á morgun sem segir bara útborgun, snilld. fæ dágóðan pening þar sem mikil vinna er að baki. Við hjónin keyptum okkur play station 3 í dag, ekki að ég spili mikið tölvuleiki en þar sem við keyptum FIFA08 með þá verður hörð barátta þar hjá okkur! ég myndi helst vilja fá super mario 3 í tölvuna en ekki er það svo gott að hann sé til í svoleiðis.

Stutt vinnuvika framunda, og svo helgarfrí og ætlum við maggi sæti að fara í bústað og slaka á, slappa af í heitapottinum og hafa það gott. Get ekki beðið !

Á að skila fyrstu ritgerðinni minni á morgun í fjarnáminu og var það í SNORRA-EDDU ekkert spes efni skal ég ykkur segja.

Hversu lélegt er það að vera nappaður við að stela í bónus, og þá á ég við fjölskylda saman, við tókum fjölskyldu við þetta í dag reyndar ekki íslendinga en æiii þetta er spes.

Núna liggjum við hjónin hérna bara uppi rúmi, ég að blogga og maggi að testa nýju tölvuna.

Vorum að horfa á næturvaktina, algjör snilld! "já fínt já sæll já fínt já sæll" kom fyrir í þættinum og þið sem sáuð þetta... þá var þetta æði, hlógum og hlógum! hehe

Jæja ætla að fara að gera eitthvað annað...

kv Rakel
30. september 2007 klukkan 21:31
Rakel Ósk Viðarsdóttir
2 athugasemdir

Ég&Maggi ástin mín

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Rakel Ósk Viðarsdóttir
  • Staður: Reykjavík/Árbæ
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Bónus
  • Hjúskaparstaða: á pikk föstu

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit